Þitt val. Þinn stíll. Þín saga.

Smíðið ykkar eigin giftingarhringa
Gerið daginn enn persónulegri með því að smíða ykkar eigin giftingarhringa undir handleiðslu Óla Stef, faglærðs gullsmiðs með áratuga reynslu.
Á námskeiðinu fáið þið að móta og smíða hringana hvort fyrir annað í notalegu umhverfi á vinnustofu í Hafnarfirði.
Lengd: Um 4 klukkustundir
Verð: Fer eftir breidd, stærð og efnisnotkun hringanna.
Einstök upplifun og persónulegir hringar sem fylgja ykkur alla ævi.

Námskeið
Námskeið í skartgripasmíði í Íshúsi Hafnarfjarðar.
Smíðaðu þinn eigin skartgrip - Þú þarft enga reynslu!

Vinkonu- og vinakvöld
Ein kvöldstund. Einn skartgripur.
Hægt er að taka mismunandi pakka.
Silfurhringur/hálsmen með steini – 39.000 kr.
Demantshringur í silfri með 14 karata gullumgjörð og 5 punkta lab demanti – 79.000 kr.
Óli Stef – Gullsmíði
Í smiðinni sameina ég klassíska gullsmíði og persónulega hönnun. Ég hef sérstakt dálæti á antíkskartgripum, litríkum eðalsteinum og óvenjulegum formum þeirra.
Fínsmíði, vandvirkni og smáatriði skipa stóran sess í minni vinnu.
Ég legg áherslu á að skapa vandaða og einstaka skartgripi þar sem fegurð steinanna fær að njóta sín.
































